Góða tungl

Lyrics
Góða tungl um loft þú líður Ljúft við skýja silfur skaut Eins og viljinn alvalds býður Eftir þinni vissu braut Öllum þreyttum, ljós þitt ljáðu Læðstu um glugga sérhvern inn Lát í húmi, hjörtun þjáðu Huggast blítt við geisla þinn Góða tungl um götur skírðar Gengur þú og lýsir vel Þar er setti sér til dýrðar Sjálfur Guð, þitt bjarta hvel Lít til vorra lágu ranna Lát þitt friðarandlit sjást Og sem vinhýr vörður manna Vitna þú um drottins ást Góða tungl í geislamóðu Glansar þú í stjarnasæ Og með svifi hvelfist hljóðu Hátíðlega' í næturblæ Þú oss færir, frá þeim hæsta Föður mildan náðar koss Og til morguns, gullinglæsta Góða tungl þú leiðir oss
Rate this song
0/5.0 - 0 Ratings
5
0.0% (0)
4
0.0% (0)
3
0.0% (0)
2
0.0% (0)
1
0.0% (0)
Loading comments...
Credits
- Writers
- Þórður Kári Steinþórsson
- JFDR
- Áslaug Magnúsdóttir
- Steingrímur Thorsteinsson