Stofnar falla

Lyrics
Stofnar falla Stráin sölna. Stofnar falla Stormur dauðans næðir alla Stofnar falla Stráin sölna. Stofnar falla Stormur dauðans næðir alla Ljóselskandi, langanþrungið Lífið fyllir öll þau skörð Sækir fram í sigurvissu Svo er strítt um alla jörð Stríðsmenn falla. Hetjur hníga Hjaðningum er stefnt til víga Aldrei verður sæst á sakir Sækja og verjast herjum tveim Sólskinsbörn og synir skuggans Svo er strítt um allan heim Tefld er drápskák tveggja herja Tvíefld sókn og reynt að verja Öllu tjaldað: erfðaheimsku Afturhaldi, þræladygð Móti þroskans sókn til sigurs Svo er strítt um alla byggð Fallinn er hann Fjögramaki Fyrr sem lyfti Grettistaki Þó að hetja hnigi í valinn Hefjum merkið fram skal stefnt Syrgjum ei, en söfnum liði Svo skal góðra drengja hefnt Örn Arnarson (Magnús Stefánsson)
Rate this song
0/5.0 - 0 Ratings
Loading comments...
Credits
- Writers
- Þórður Kári Steinþórsson
- JFDR
- Áslaug Magnúsdóttir
- Örn Arnarson (Poet)
- Magnús Stefánsson