Stofnar falla (Subminimal remix)

Subminimal - Electronic, Pop
Stofnar falla (Subminimal remix)
2 Plays
Duration: 6:50
Lyrics
Stráin sölna. Stofnar falla Stormur dauðans næðir alla Ljóselskandi, langanþrungið Lífið fyllir öll þau skörð Sækir fram í sigurvissu Svo er strítt um alla jörð Stríðsmenn falla. Hetjur hníga Hjaðningum er stefnt til víga Aldrei verður sætzt á sakir Sækja og verjast herjum tveim Sólskinsbörn og synir skuggans Svo er strítt um allan heim Tefld er drápskák tveggja herja Tvíefld sókn og reynt að verja Öllu tjaldað: erfðaheimsku Afturhaldi, þræladyggð Móti þroskans sókn til sigurs Svo er strítt um alla byggð Fallinn er hann Fjögramaki Fyrr sem lyfti Grettistaki Þó að hetja hnigi í valinn Hefjum merkið, fram skal stefnt Syrgjum ei, en söfnum liði Svo skal góðra drengja hefnt Þó að hetja hnigi í valinn Hefjum merkið, fram skal stefnt Syrgjum ei, en söfnum liði Svo skal góðra drengja hefnt
Rate this song
0/5.0 - 0 Ratings
Loading comments...
Credits
- Writers
- Traditional
- JFDR
- Þórður Kári Steinþórsson