Leikfimitími

Lyrics
Jæja krakkar, náið ykkur í stól og komið honum vel fyrir Þetta er enginn venjulegur stóll, því þessi stóll á að vera bíll Og enginn smá bíll, þetta er flottasti bíllinn í bænum! Við ætlum að fara með þennan bíl upp á fjöllin þar sem við ætlum á skíði Og ekki bara á skíði, heldur að taka þátt í skíðamóti! Byrjum á því að setja lyklana í bílinn og setjast inn í fína bílinn okkar og skella hurðinni Nei, hvað, hann lokast ekki alveg, skella aftur. Setja á okkur öryggisbeltið Það er nauðsynlegt að vera alltaf með öryggisbelti Og setja síðan í gang Nú? Og aftur. Nú, af hverju fer hann ekki í gang? Og aftur! Jahá, auðvitað fer fíni bíllinn okkar í gang Skipta um gír og leggja í hann Og flauta. Vei-veifa öllum heima, passa að keyra ekki á samt! Úff, þarna munaði nú nánast engu. Og bеygja, hérna kemur stór beygja núna Vá, tsjúufff þetta еr svo fínn bíll. Og aftur beygja! Úff, og keyra já Heyrðu, það er ein hurðin er ennþá opin! Og skella aftur. Ég vona að hún haldist lokuð. Og, Hvað er á veginum, flauta! Ha, hva-hvað er þetta? Er þetta hundur? Nei, nei eða köttur? Hva-hvað ætla þetta hafi verið? Jæja, komin framhjá. Þarna er eitthvað á veginum, og bremsa! Vá, hvað er þetta eiginlega? Taka af sér öryggisbeltið, opna hurðina og skella Hvað, það er svo kalt hérna úti, úff. Reyna að slá sér til hita aðeins, úff Hvað er þetta hérna? Nei, þetta er stærsti snjóskafl sem ég hef nokkurn tíma séð! Við komumst nú yfir þennan snjóskafl samt á bílnum Best að drífa sig bara aftur inn í bíl og að keyra yfir þetta Skella hurðinni, setja á sig öryggisbeltið og setja hann í gang Nei, hva, hvað er í gangi? Hva? Hvað er að? Hann er nú bara eitthvað bilaður! Taka af sér öryggisbeltið, opna hurðina og skella Aftur þessi kuldi, reyni að opna húddið. Kíkja ofan í, já Hvað ætli það gæti þetta verið... Hvað gæti þetta verið Ég held að þetta sé frekar undir honum, skríða bara undir bílinn Eru allir komnir undir? Nei, hérna er nú laus skrúfa sé ég Og skrúfa. Og hérna er önnur. Heyrðu, hérna er líka önnur skrúfa Hér þarf nú að gera meira en að skrúfa, taka hamarinn og slá í þetta Og hinum megin. Nú verður þetta að lagast ef maður lemur tvö högg í viðbót Nú ætti hann að vera kominn í lag! Skríða undan bílnum Opna hurðina, skella, setja á sig öryggisbeltið, og setja hann í gang Hmm, ha, aftur. Hann fer bara ekki í gang, aftur. Hvað eigum við nú að gera? Nú erum við í vandræðum. Nei, það er nú stutt í næsta bóndabæ! Af hverju göngum við ekki bara þangað, og látum bóndann hjálpa okkur? Losa beltið, opna hurðina, og skella og ganga af stað Upp brekkuna, yfir allt túnið og upp að bóndabænum Jæja, berjum að dyrum. Vonandi er einhver heima Góðan dag Góðan dag, hvað get ég gert fyrir þig? Jú, þú getur aðstoðað mig. Mig vantar svo farartæki til að komast á skíðamót Ég á nóg af farartækjum. En þau eru öll lifandi Lifandi? Hvað meinarðu með því? Hefurðu aldrei setið hest, drengur? Jú jú, ég þigg nú hestinn Já, hann er þarna úti í hesthúsi, sæktu hann bara sjálfur Þakka þér innilega fyrir! Krakkar! Drífið þið ykkur og náið þið í kúst á meðan ég fer og sæki hestinn í hesthúsið! Nú ættu allir að vera tilbúnir og komnir á bak Þessi hestur fer aldeilis hratt! Hann getur meira að segja prjónað! Úff, það er eins gott að detta ekki af baki! Heyrðu, þarna sé ég skíðabrekkuna, við megum ekki missa af skíðamótinu Við ætlum jú að keppa Við erum komin. Já, takk Skáni Jæja, þá er best að teygja aðeins úr okkur og gera pínulitla leikfimi áður en við förum á skíðin Byrjum bara á því að ganga á staðnum Og svo, beygja sig í hnjánum og rétta úr sér Einu sinni einn! Beygja, rétta Beygja, rétta Beygja og rétta Beygja og rétta Út með hendur Upp með hendur Niður með hendur Og einu sinni enn! Upp með hendur Út með hendur Niður með hendur Og klapp klapp klapp Eitt skref til vinstri Eitt skref til hægri, hraðar! Vinstri, hægri, vinstri, hægri Teygja úr sér og hvíla sig aðeins Jæja, nú ættu allir að vera tilbúnir að keppa á skíðamótinu Búin að festa skíðin, við erum efst í brekkunni, og nú er bara að renna sér af stað! Og byrjum á því að beygja okkur í hnjánum. Og taka eina beygju Og svo eina beygju í viðbót, og passa sig, passa að detta ekki. Og svo beint áfram Og þarna er stökkpallur framundan og stökkva! Vá, var einhver sem datt? Og svo beygja. Og beygja, vá, og beygja. Og svo stökkpallurinn, annar, annar stökkpallur og stökkva! Vá! Þarna er markið, hver er að verða fyrstur í mark, hraðar, hraðar, reyna að komast hraðar! Og í mark! Við erum fyrst! Vei, við unnum! Jibbý! Húrra!
Rate this song
0/5.0 - 0 Ratings
Loading comments...
Credits
- Writers
- Davíð Þór Jónsson