Yndisdráttur

Lyrics
Komdu nær minn kæri Sleiktu mig með orðum þínum Snertu mig með augum þínum Grænum, daufum Ég finn lykt líkama þíns Leyfðu henni að fylla mig Mig alla og meira og meira Hvert ferðu Þegar nóttin kemur? Þú segir góða nótt við mig Á kvöldin, þegar við erum saman En þegar sólin skín Ertu blindur Ég veit að nóttin fer mer vel En hugsar þú um mig? Tek ég mikið pláss? Tek ég mikið pláss? Lúmskur ertu andskoti Leikur að lyfjum Og leyfir mér leikinn Hratt en bítandi bítur gleðin mig Gufar svo upp eins og reykur Nei, nú er nóg komið minn kæri Ég elskaði þig ekki Þótt þú þættist þekkja mig Þótt þú þættist elska mig Eins og svo oft var ég að blekkja þig Segðu mér sannleikann siðlausi skratti Förum til fjandans og gerum það saman Förum til fjandans og gerum það saman Saman
Rate this song
0/5.0 - 0 Ratings
Loading comments...
Credits
- Writers
- Laufey Soffía
- Margrét Rósa Dóru- Harrysdóttir
- Sólveig Matthildur Kristjánsdóttir