Ástarljóð

Lyrics
Hvernig gátu hunangsgylltar hlíðarnar Og bjargvættar bláminn í björgunum Skyndilega skotist á brott Skelfingar skugginn er kuldalegur Vorið var vonbrigði Og sumarið þrældómur vetrarins Ég er volandi vændiskona Veggja sem hindra mína Gleði og glæstu framtíðar drauma Ég man þegar ég speglaðist Í gullslegnu vatni Og sá sjálfa mig brosa Svanurinn sem kenndi mér Forðum að fljúga Er nú farinn, floginn á brott Og ég sit hérna eftir Alveg vængjalaus Og velti því fyrir mér Hvort ég fái nokkurn tíma aftur að fljúga Ég festi mig við arfa í garðinum Hjartað mitt er að springa Skelfingar skjálfti í líkama mínum Ríkir og reiðin er óflýjandi Líkami minn er ólgusjór Og ég vona að þið drukknið öll með mér Hjartsláttur minn er óreglu öldugangur Og lungun mín fyllast af vatni Þetta er ástarljóð Ástarljóð Ég vona að þú farir til helvítis, ástin mín Svo ég fái kannski að hitta þig aftur Ég vona að þú farir til helvítis, ástin mín Svo ég fái kannski að hitta þig aftur Ég vona að þú farir til helvítis, ástin mín Svo ég fái kannski að hitta þig aftur Ég vona að þú farir til helvítis, ástin mín Svo ég fái kannski að hitta þig aftur Ég vona að þú farir til helvítis, ástin mín Svo ég fái kannski að hitta þig aftur Aftur Svo ég fái kannski að hitta þig aftur Aftur Aftur
Rate this song
0/5.0 - 0 Ratings
Loading comments...
Credits
- Writers
- Laufey Soffía
- Margrét Rósa Dóru- Harrysdóttir
- Sólveig Matthildur Kristjánsdóttir