Krummavísur

Lyrics
Krummi svaf í kletta gjá, - Kaldri vetrar nóttu á Verður margt að meini; Verður margt að meini; Fyrr en dagur fagur rann Freðið nefið dregur hann Undan stórum steini Undan stórum steini Allt er frosið úti gor Ekkert fæst við ströndu mor Svengd er metti mína; Svengd er metti mína; Ef að húsum heim ég fer Heimafrakkur bannar mér Seppi´ úr sorpi´ að tína Seppi´ úr sorpi´ að tína Öll er þakin ísi jörð Ekki séð á holta börð Fleygir fuglar geta; Fleygir fuglar geta; En þó leiti út um mó Auða hvergi lítur tó; Hvað á hrafn að éta? Hvað á hrafn að éta? Sálaður á síðu lá Sauður feitur garði hjá Fyrrum frár á velli Fyrrum frár á velli 'Krúnk, krúnk! nafnar, komið hér! Krúnk, krúnk! því oss búin er Krás á köldu svelli Krás á köldu svelli.'
Rate this song
0/5.0 - 0 Ratings
Loading comments...